Heimsókn til nýbakaðra foreldra: 6 ráð til að gera hana ómetanlega!

1. Gakktu úr skugga um að fjölskyldan sé tilbúin að taka á móti gestum
Sumir vilja ekki fá gesti fyrstu dagana eða jafnvel vikurnar eftir fæðingu og það er algjörlega eðlilegt! Fjölskyldan á fullt í fangi með að kynnast nýjasta fjölskyldumeðlimnum og það er nægur tími til að fá gesti síðar og treystið mér það er mjög gaman að fá heimsókn þegar líða fer á fæðingarorlofið og foreldrar hafa jafnvel einangrast aðeins innan veggja heimilisins.


2. Komdu með mat!
Já, komdu með mat og jafnvel þó að þú komir ekki í heimsókn, þá slær tilbúinn heimagerður matur sem aðeins þarf að skella í ofninn og hita alltaf í gegn. Svo ekki sé nú talað um osta, ber, kex, sultu, kjöt, sæta bita, þið skiljið hvað ég meina. Svona sending getur ekki klikkað hjá nýbökuðum og lítið sofnum foreldrum.


3. Ekki gera ráð fyrir að fá að halda á hvítvoðungnum
Sumum foreldrum líður vel með að aðrir haldi á nýjasta fjölskyldumeðlimnum, aðrir vilja bíða. Ef þig langar til að halda á barninu, spurðu kurteislega og berðu virðingu fyrir svarinu. Það er aldrei illa meint.


4. Hjálpaðu til
Ef þú færð að halda á barninu, geturðu boðið aðstoð þannig að foreldrarnir geti farið í sturtu, sinnt eigin erindum eða tekið smá pásu. Ef þeir eru ekki tilbúnir að láta barnið frá sér geturðu boðist til að brjóta saman þvott, skella í vél en kannski fyrst og fremst spjalla saman og hlusta á það sem liggur þeim á hjarta. Litlir hlutir sem gera mikið á þeirra annasama degi.


5. Ekki setjast að
Það getur verið yfirþyrmandi að hafa marga gesti eða langar heimsóknir þegar nýburi er á heimilinu. Stoppaðu stutt og komdu færandi hendi sbr. lið 2.


6. Hafðu börnin þín heima
Skynsamlegast er að skilja eldri krakka eftir heima, svo gott sem allan aldur fyrir utan nýbura. Fjölskyldan á fullt í fangi með að kynnast nýjasta fjölskyldumeðlimnum og svo er sýkingarhætta alltaf staðreynd; nýburi er viðkvæmur, og eldri börn koma oft með bakteríur og vírusa úr leikskóla eða skóla.

Og að sjálfsögðu, hreinlæti!
Alltaf að þvo sér um hendur áður en þú snertir barnið já eða bara nokkuð á heimilinu. Það er alltaf það fyrsta sem ég geri þegar ég fer í nýburamyndatökur að þvo mér um hendurnar, svo kannski þiggja einn kaffibolla og spjalla áður en ég svo mikið sem tek upp myndavélina. Hreinar hendur og afslappað andrúmsloft.

Ef þig langar að skoða fleiri fallegar nýburamyndir, kíktu þá á endilega á þær hér.

Next
Next

Hvernig undirbýrðu þig fyrir nýburamyndatöku heima?