Hvernig undirbýrðu þig fyrir nýburamyndatöku heima?
Það er einstakt að fá að mynda fyrstu dagana með litla kraftaverkinu þínu í ykkar eigin rými. Heimilið er staðurinn þar sem ykkur líður best og þar sem fyrstu minningarnar verða til. Þessi myndataka snýst ekki um að hafa allt fullkomið, hún snýst um að fanga ást, nánd og raunveruleg augnablik.
Hér eru nokkurr góð ráð til að undirbúa sig fyrir nýburamyndatöku heima, svo að upplifunin verði sem best og myndirnar verði eins fallegar og mögulegt er.
Umhverfið – hvar mun ég mynda?
Ég leita alltaf að fallegri náttúrulegri birtu og vel besta staðinn út frá því. Oftast eru það svefnherbergið, stofan eða barnaherbergið en það skiptir ekki máli hvort allt sé „fullkomið“ eða ekki. Við færum aðeins til ef þarf og tryggjum að umhverfið henti myndatökunni.
Það er engin þörf á að þrífa heimilið hátt og lágt við sníðum umhverfið að myndatökunni þegar ég kem og um að gera að nýta allan dýrmætan tíma til að kynnast nýburanum ykkar.
Hár og förðun – einfalt og snyrtilegt
Þó að nýburamyndataka sé náttúruleg og afslöppuð, þá skiptir máli að vera vel til hafður, því litlu atriðin sjást vel á myndum.
Hárið: Hreint, þurrt og vel greitt er lykilatriði.
Förðun: Ef þú notar farða, vertu viss um að áferðin sé falleg og náttúruleg. Léttur hyljari og púður getur gert kraftaverk.
Neglur: Vel snyrtar neglur skipta máli, bæði hjá foreldrunum og nýburanum sjálfum. Nærmyndir af smáum nýburahöndum er svo fallegar og þar sem að nýburinn er stærstan hluta myndatökunnar í örmum foreldra sinna er óhjákvæmilegt að hendur þeirra sjáist. Ef þú ert með naglalakk, veldu þá hlutlausan lit.
Í hverju eigum við að vera?
Fötin skipta máli en það allra mikilvægasta er að þér líði vel. Þú þarft ekki að klæða þig í eitthvað sem er ekki „þú“, vertu í þínum eigin stíl, hvort sem það er mjúkur kjóll, víð og þægileg skyrta eða einfaldur bolur. Veldu mjúka, náttúrulega liti t.d. jarðliti, beige, hvítan, ljósgráan, ljósbláan eða dökkgrænan. Einfaldir litir og áferð virka best, reyndu að forðast sterka liti, mikið mynstur eða lógó. Þar sem myndatakan fer fram heima í ykkar umhverfi eru líka hæg heimatökin að skipta um föt ef eitthvað kemur uppá. Allt þetta sama á líka við um pabbana.
Hvað með barnið?
Það er lítið mál að skipta um föt á nýburanum og svo er alltaf fallegt að leyfa húðinni að njóta sín og vera bara á bleyju og mögulega undir teppi. Ef þú ert með ákveðinn fatnað í huga, hafðu hann tilbúinn en ekki stressa þig á því. Einfalt er oft best.
Rólegur undirbúningur – ekki stressa þig á heimilinu
Það er alveg eðlilegt að heimilislífið með nýbura sé aðeins í óreiðu og engin ástæða til að taka til á öllu heimilinu fyrir myndatökuna. Ef þú vilt undirbúa aðeins, reyndu að taka til á þeim svæðum sem er líklegt að við notum.
En mundu: Það þarf ekki að vera fullkomið! Ég sé um að finna bestu sjónarhornin og tryggja að umhverfið sé fallegt á myndunum.
Slakaðu á og njóttu augnabliksins
Þetta eru fyrstu dagarnir með litla gullmolann, leyfðu mér að fanga þá eins og þeir eru, með ástinni, nálægðinni og hlýjunni sem einkennir þennan tíma. Þarfir nýburans ganga alltaf fyrir, ef barnið þarf næringu eða nýja bleyju þá græjum við það og hver veit nema einhver falleg mynd komi út úr því, kannski mynd sem verður uppáhalds hjá ykkur. Ef eldri systkini eru með í myndatökunni, þá leyfum við þeim að vera þau sjálf. Bestu myndirnar koma oft úr litlu óvæntu augnablikunum.
Mundu að njóta, þessi tími kemur ekki aftur
Fyrstu dagarnir heima eru dýrmætir og geta svo sannarlega líka verið yfirþyrmandi. Myndatakan er tækifæri til að hægja aðeins á, líta á litla kraftaverkið þitt og fanga þessa einstöku tíma með fallegum og tímalausum myndum.
Ef þig langar að skoða fleiri fallegar nýburamyndir, kíktu þá á endilega á þær hér.