Hvernig myndirnar ykkar lifa áfram

Fyrsta skrefið er myndatakan.

Hvort sem um er að ræða nýburamyndatöku, meðgöngumyndatöku, fermingu eða brúðkaup eða eitthvað allt annað þá snýst myndatakan um að fanga augnablik sem eiga sér stað hér og nú. Augnablik sem verða aldrei alveg eins aftur.

En hvað gerist svo?

Það er spurning sem margir velta ekki endilega fyrir sér fyrr en myndatakan er búin.

Eftir myndatökuna hefst næsti kafli. Myndirnar eru valdar af natni, unnar hver fyrir sig og síðan birtar í persónulegu myndasafni þar sem hægt er að skoða þær í rólegheitum og ákveða hvernig best sé að varðveita þær til framtíðar.


Fyrsta skrefið: Myndatakan
Markmiðið með myndatökunni er ekki að taka sem flestar myndir heldur að taka myndir sem skipta máli. Þess vegna eru allar myndir sem birtast í myndasafninu valdar af kostgæfni og unnar með það að markmiði að þær standist tímans tönn. Alltaf gæði umfram magn.


Af hverju er verðskráin tvískipt?
Ein algengasta spurningin sem berst er hvernig ferlið virkar eftir myndatökuna. Myndatakan sjálf er fyrsta skrefið. Hún felur í sér undirbúning, myndatökuna og faglega eftirvinnslu. Að henni lokinni fá viðskiptavinir aðgang að persónulegu myndasafni þar sem hægt er að velja hvernig myndirnar verða varðveittar.

Ástæðan fyrir þessu fyrirkomulagi er einföld. Engar tvær fjölskyldur eru eins. Sumir vilja stækkanir á veggina. Aðrir vilja fallega ljósmyndabók. Sumir vilja stafrænar myndir og aðrir vilja allt þetta saman.

Með tvískiptri verðskrá greiðir hver og einn aðeins fyrir þá varðveislu sem hentar sinni fjölskyldu best, í stað þess að allir þurfi að kaupa sama pakkann.

Þegar myndirnar eru tilbúnar
Tveimur vikum eftir myndatökuna opnast persónulegt myndasafn þar sem allar bestu myndirnar bíða fullunnar. Í myndasafninu er vefverslun þar sem hægt er að velja úr mismunandi leiðum til að njóta myndanna:

– handgerðar ljósmyndabækur
– hágæða stækkanir
– stafrænar myndir í skjáupplausn

Þannig getur hver fjölskylda fundið þá leið sem hentar henni best.

Af hverju vefútgáfa í skjáupplausn?
Stafrænar myndir í vefútgáfu eru ætlaðar til notkunar á síma, tölvu og samfélagsmiðlum. Til prentunar býð ég upp á stækkanir og aðrar vörur sem ég sé sjálf um að framleiða og afhenda. Það er stór hluti af minni þjónustu. Þannig get ég tryggt að litir, skerpa, pappír og frágangur séu eins og þeir eiga að vera og að lokaútkoman endurspegli þá vinnu sem lögð var í myndirnar.

Prentaðar myndir lifa lengur
Símar bila. Harðir diskar eyðileggjast. Skýjaþjónustur breytast.

En falleg mynd á vegg eða ljósmyndabók á stofuborði verður hluti af heimilinu.

Prentaðar myndir eru ekki bara skrár, þær verða hluti af fjölskyldusögunni.

Varðveitt til framtíðar
Myndirnar hverfa ekki þegar myndasafnið lokar. Öll myndasöfn eru varðveitt til framtíðar, það er því engin þörf á að taka allar ákvarðanir strax. Myndirnar bíða ykkar og alltaf hægt að bæta við stækkunum, bók eða öðrum vörum síðar.

Þannig geta myndirnar haldið áfram að lifa og gleðja um ókomin ár.

Uppáhaldið mitt

Af öllum vörunum sem í boði eru standa handgerðu ljósmyndabækurnar sérstaklega nærri hjarta mínu. Þær eru miklu meira en bók. Þær eru persónuleg listaverk sem segja sögu fjölskyldunnar og varðveita hana á þann hátt sem enginn skjár getur gert.

Kannski er það einmitt það sem þetta snýst allt um. Ekki bara að taka myndir. Heldur að skapa eitthvað sem lifir áfram


Ég hlakka til að mynda ykkur!

Next
Next

Heimsókn til nýbakaðra foreldra