Nýburamyndir

Augnablik frá Einstöku tímabili


Frá því að þú sérð barnið þitt í fyrsta sinn læðist að þér löngunin um að fá tímann til að standa í stað. Breytingarnar á fyrsta aldursári barnsins eru hreint ótrúlegar og stundum er eiginlega ekki hægt að ímynda sér að þessi hressi, babblandi og jafnvel gangandi einstaklingur hafi einhvern tíman verið agnarsmár og fullkomlega ósjálfbjarga. Það er svo dýrmætt að eiga nokkur augnablik frá þessum fyrstu kynnum foreldra og barns í formi mynda sem fylgja ykkur það sem eftir er. 

 

Ástæða þess að ég mynda í heimahúsum

Að koma heim með nýfædda barnið sitt og að verja fyrstu dögunum saman eru viðkvæmur og fallegur tími sem leggur grunninn að góðum tengslum. Þetta eru stundir sem koma aldrei aftur og eru bæði dýrmætar og svolítið heilagar. Minningar um þennan tíma verða enn skýrari ef myndirnar eru teknar á þeim stað sem foreldrar og barn þekkja best og líður vel á – heima. Hér þarf engar áhyggjur að hafa af því að eitthvað gleymist eða vanti því heima er allt til alls."

Meðgöngumyndir

Augnablik frá Einstöku tímabili


Níu mánuðir. Þeir geta stundum verið svolítið lengi að líða en í stóra samhenginu er þetta stuttur tími. Meðgangan er ævi út af fyrir sig. Í henni kviknar lífið, þróast og þroskast, áður en næsta tilverustig tekur við. Tími sem einkennist af eftirvæntingu, undirbúningi og stundum smá óvissu um hvernig lífið verði þegar þessi mikilvæga manneskja mætir til ykkar. Meðgöngumyndir eru falleg minning um magnaðan tíma og vitnisburður sem ekki bara foreldrunum á eftir að þykja vænt um, heldur líka barninu sjálfu þegar fram í sækir.

um mig

Ég hef unnið sem ljósmyndari frá árinu 2007 og starfað við fagið á ýmsum sviðum. Á þessum tíma hef ég hef tamið mér að koma auga á fallegu stundirnar í litlu augnablikunum, sem skipta oft mestu máli þegar við lítum til baka. Ég legg mig fram um að fólki líði vel í myndatökunni og að stemningin sé bæði notaleg og skemmtileg til að útkoman verði ánægjuleg minning sem lifir áfram árum saman. Ég er fjögurra drengja móðir og hef mikinn áhuga á öllu sem viðkemur meðgöngu, móðurhlutverkinu, börnum og fjölskyldum. Viðburðir í lífinu eru af ýmsum toga, frá því að missa fyrstu tönninna til þess að ganga í það heilaga og allt þar á milli. Gleymum ekki að fagna þeim öllum.

Ég hlakka til að hjálpa ykkur að muna eftir góðu stundunum.

 

FJÖLSKYLDUVIÐBURÐIR

Fjölskyldumyndatökur, meðgöngu- og nýburamyndir, fermingar, útskriftir og stórafmæli svo fátt eitt sé nefnt. Það er alltaf tilefni til að fagna.

 

BRÚÐKAUP

Stóri dagurinn þar sem undirbúningur, athöfn, veisla og að sjálfsögðu ástin fléttast saman í eitt. Hægt er að mynda allan daginn eða hápunkta hans.

 

Önnur verkefni

Starfsmannamyndir fyrirtækja, hverskonar veislur, viðburðir eða verkefni. Hafðu samband og við finnum út hvað hentar þér.